Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Allir hanar gala
:/:Allir hanar, gala,
allir hanar, gala,
vindhaninn galar ei.
Vindhaninn galar ei
segi ég, ónei. :/:
Meló, meló, meló,
meló, meódý
þú ert mitt svermerí.
Meló, meló, meló,
meló, meódý
þú ert mitt svermerí.
:/:Allir boltar velta,
allir boltar velta,
strauboltinn veltur ei.
Strauboltinn veltur ei
segi ég, ónei.:/:
Meló, meló............
:/:Allir fiskar synda,
allir fiskar synda,
plokkfiskur syndir ei.
Plokkfiskur syndir ei
segi ég, ónei.:/:
Meló, meló............
:/:Allir karlar hlaupa,
allir karlar hlaupa,
járnkarlinn hleypur ei.
Járnkarlinn hleypur ei
segi ég, ónei.:/:
Meló, meló............
:/:Allir jaxlar tyggja,
allir jaxlar tyggja,
grænjaxlar tyggja ei.
Grænjaxlar tyggja ei
segi ég, ónei.:/:
Meló, meló............
Höf ókunnur
