Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Nú er ég glaður á góðri stund

Nú er ég glaður á góðri stund,
sem á mér sér;
guði sé lof fyrir þennan fund
og vel sé þeim sem veitti mér.

Vitjað hef ég vina mót,
sem nú á sér;
reynt af mörgum hýrleg hót;
vel sé þeim, sem veitti mér.

Yndi er að sitja öls við pel
og gamna sér;
en fallegt er að fara vel,
þó ör sé sá sem á skenkir.

Gott er að hafa góðan sið,
sem betur fer,
aldrei skartar óhófið,
og er sá sæll sem gáir að sér.

Gott er að hætta hverjum leik,
þá hæst fram fer.
Nú skal hafa sig á kreik;
vel sé þeim, sem veitti mér.

Hallgrímur Pétursson