Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Átján rauðar rósir

Átján rauðar rósir eru hér
Átján rauðar rósir ætlaðar þér
Til dyranna ég fór og sendill mætti mér
með átján rauðar rósir handa þér

Á kortið ég leit og lostinn furðu ég var
Er las ég þau orð er árituð voru þar
Þótt öðrum sértu ætluð mín ást er söm á þér
Já átján rauðar rósir handa þér

Og ég sem hélt að þú ynnir mér einum
Og hefðir alla tíð verið trú
En ævintýri þú áttir í leynum
þess bera átján rósir vitni nú

Nei eitthvað stendur enn á kortinu hér
Ég ætlaði vina mín loks að segja þér
að átján rauðar rósir þær fölna og falla um síð
en mín föðurást hún varir alla tíð