Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ruslaskrímslið

Þetta ruslaskrímsli er svo óskaplega leiðinlegt
það eykur bara vandræði og basl.
Og því ættum við nú krakkar að farga því sem fyrst
og fara út á lóð að tína drasl.

:/: Já, því ruslaskrímslið, ruslaskrímslið skítugt er
og skemmir náttúruna fyrir mér :/:

Meðan enginn kunni’ að búa til alla vega dót
var ekkert ruslaskrímsli hérna til.
Þá var náttúran svo óspillt og hvergi sorp og sót,
nú sóðaskapinn reka burt ég vil.

:/: Já, því ruslaskrímslið, ruslaskrímslið skítugt er
og skemmir náttúruna fyrir mér :/:

Margrét Ólafsdóttir