Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Bílavísur (Halló, þarna, bíllinn ekki bíður)
Halló þarna bíllinn ekki bíður,
æ blessuð flýtið ykkur tíminn líður.
Sæti fröken, sestu þarna manni.
“Þau ætluðu nefnilega rétt sem allra snöggvast
að skreppa suður í Hafnarfjörð og auðvitað í”
leyfisleysi og banni.
Heyrðu Vigga var það ekki sniðugt
að vefja gömlu mútter svona liðugt
um fingur sér og finnst þér ekki gaman,
“að fljúga svona í loftinu, faðmast og kyssast
og yfirleitt”
að vera svona saman?
Ó jú góði elskulegi Gvendur
ef hún mamma vissi að þú ert kenndur
og ég með þér í bíl að klappa og kyssa.
“Ég er alveg viss um að kerlingin yrði bara
alveg hringlandi, bandsjóðandi vitlaus og hún
yrði áreiðanlega alveg”
voðalega hissa.
Og bíllinn þaut sem örskot út úr bænum
og oft er kátt í fjaðrasófum grænum.
Svo kysstust þau og kysstust þrjá og fjóra,
“Bæði langa, mjóa, stutta, digra, sívala, fer-
kantaða, allt eftir því hvað bíllinn hossaðist
mikið”
kossa smáa og stóra.
En krosstré brotna eins og aðrir raftar
og allra bestu þagna stundum kjaftar.
Á Öskjuhlíð kom ógurlegur smellur.
“Slangan í sundur, bílllinn stoppaði og”
signalpípan gellur.
En í þvi bili bar að konu eina
og byrjaði þá að fara um Gvend og meyna
því það var von og þótti engum mikið.
“Ástin í sjóinn, hjörtun duttu ofan í sokkana,
því þetta var gamla mútta”
að ganga af sér spikið.
En síst er hægt að segja frá í kvæði
svarralátum kerlingar og bræði.
Gvend hún barði og bauðst að taka völdin.
“Ég skal nú bara segja þér það Vigga mín að
ég get bæði verið bíll og bílstjóri og ég skal
kenna þér það Vigga mín að hætta”
að stelast út á kvöldin.
Ingimundur (Kristján Linnet)
