Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Dirrindí
Með krús í hendi ég sat eitt sinn;
þá settist lóa við gluggan minn.
Í hennar augum var háð og spott,
og á hennar nefi var lóuglott.
Hún söng dirrindí, dirrindirrindí,
bara dirrindí, dirrindirridí.
En þó hún syngi bara dirrindí,
fannst mér vera þó nokkurt vit í því.
Hún sagði að heimsins um víðan veg
ekki væri til maður eins og ég,
sem ár og síð lægi leti í
svo að líkast til á ég met í því.
Hún söng dirrindí,....
Já, allt til forráttu fann hún mér,
og ég fékk hjá henni þann karakter
ég væri aldeilis auðnulaus
og alveg sérstakur þöngulhaus.
Hún söng dirrindí,....
Og hún sagði að ég skyldi skammast mín
og að skyndikonur og brennivín
með stundargaman og dufl og dans
mundu draga mig beint til andskotans.
Hún söng dirrindí,....
Jónas Árnason
