Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ég er fæddur ferðamaður

Lag: Volga, Volga

Ég er fæddur ferðamaður,
frjáls sem örn, er hæstur fer.
Alltaf hress og ætíð glaður
aðrir þó að barmi sér.

Þegar langa leið skal fara,
læra margt og stæla fjör,
tjáir eigi táp að spara,
telja spor og letja för.

Þó að renni röðull fagur,
ránar til í nætur frið,
aftur rís úr dimmu dagur,
dáða til, er hvetur lið.

Áfram, áfram ungi maður.
Á þig mænir tímans von.
Vertu djarfur, vertu glaður,
vorsins barn og óskason.