Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Eggert Ólafsson
Þrútið var loft og þungur sjór,
þokudrungað vor.
Það var hann Eggert Ólafsson,
hann ýtti frá kaldri Skor.
Gamall þulur hjá græði sat,
geigur var svip hans í.
Hann mælti við Eggert Ólafsson:
„Mér ógna þau vindaský.“
„Ég sigli ei skýin, ég sigli sjá!“
svaraði kappinn og hló.
„Ég trúi á Guð en Grýlur ei
og gleð mig við reiðan sjó.“
Gamall þulur frá græði hvarf,
gegndi með þungri lund:
„Þú siglir ei þennan sjó í dag,
þú siglir á Guðs þíns fund.“
Það var hann Eggert Ólafsson,
hann ýtti frá kaldri Skor,
vindur upp segl og sjálfur við stjórn
settist með formanns þor.
Knúðu rastir knerrir tveir,
komið var rok um svið.
Síðasti fugl úr fjarri Skor
flögraði' á vinstri hlið.
Á búlkanum situr brúður ung,
bleik var hin göfga kinn:
„Ó, Guð sú báran er brött og há,
hún brotnar í himininn inn.“
„Hækkið þið seglin!“ hetjan kvað,
en Helja skjótari varð.
Boðinn skall yfir bárumar,
í búlkann var komið skarð.
Það var hann Eggert Ólafsson,
frá unnarjónum hann stökk,
og niður í bráðan Breiðafjörð
í brúðar örmum sökk.
„Það var hann Eggert Ólafsson“
- Íslands vættur kvað -
„aldregi græt ég annan meir
en afreksmennið það.“
Ef þrútið er loftið, þungur sjór
og þokudrungað vor,
þú heyrir ennþá harmaljóð
sem hljóma frá kaldri Skor.
Matthías Jochumsson
