Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Eitthvað gamalt og gott
Við félagarnir förum oft á sveitaböll,
náum þar í dúfur og fáum drátt.
Þetta eru oftast mikil fylliskröll,
við syngjum alltaf með og dönsum dátt.
Eini gallinn yfirleitt er hljómsveitin,
hún spilar skrýtin lög og hefur hátt.
En ég þekki alla þessa karla út og inn,
svo ég æði upp og bið þá opinskátt.
Gætum við fengið að heyra eitthvað íslenskt,
eitthvað gamalt og gott.
Gætum við fengið að heyra eitthvað íslenskt,
eitthvað gamalt og gott.
Framúrstefnutextana og útlensku,
höfum við sko ekki´í okkar sveit.
Áður fyrr við höfðum eina harmonikku,
og hvursu gaman var þá hver einn veit.
Gætum við fengið að heyra…
(Sóló)
Já enginn spilar lengur ræl og sjarleston,
og ekki kemst maður lengur í góðan kokk.
Já mætti ég kannski biðja um Þorstein Guðmundsson,
og Gissur Geirs, þeir spila fleira´en rokk.
Gætum við fengið að heyra…
Ævar Rafnsson og Kári Waage
