Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

Fundust: 910 textar

Ein stutt ein löng

Ein stutt, ein löng, hringur á stöng og flokkur sem spilaði´og söng. Köttur og mús og sætt lítið hús, sætt lítið hús…

Einbúinn

Ég bý í sveit, á sauðfé á beit og sællegar kýr úti á túni. Sumarsól heit, senn vermir nú reit en samt…

Einhversstaðar einhverntíma aftur

Einhversstaðar einhverntíma aftur liggur leið þín um veginn til mín og þú segir: „Ég saknaði þín, ég saknaði þín“. Kyrrlátt kvöldið hvíslar…

Einingarljóð

Sigðirnar hvína og hamrarnir slá. Hlustaðu, félagi, sönginn á: berum þann kliðandi iðjunnar óð út yfir dali og strendur. Fagurt mun svífa’…

Einmana jurt

Langt úti á sandi sumarblómið fríða sorgmæddu höfði drúpti bæði nótt og dag. Með sinni fegurð skóginn vildi skrýða, skynja hans frið…

Einn skakkur og skrýtinn maður

Einn skakkur og skrýtinn maður gekk skakka og skælda braut, fann skakka og skælda krónu í skakkri og skældri laut og skakka…

Einshljóðfæris synfónían

Fyrir nokkrum árum þegar fékk ég gítarinn ég fór með hann beint upp á loft og æfði mig um sinn. Í herberginu…

Einsi kaldi úr Eyjunum

Ég heiti Einsi kaldi úr Eyjunum ég er innundir hjá meyjunum. og hvar sem ég um heiminn fer þær horfa á eftir…

Einu sinni á ágústkvöldi

Einu sinni á ágústkvöldi austur í Þingvallasveit gerðist í dulitlu dragi dulítið sem enginn veit, nema við og nokkrir þrestir og kjarrið…

Eitt er hið æðsta

(Lag: Hlíðin mín fríða)
Eitt er hið æðsta allra boðorðanna, helgasta, hæsta: Hjartans elskan sanna. Ekkert annað sýnir eins þig Guðs vin sannan. Elskið hver annan.…

Eitt er landið ægi girt

Eitt er landið ægi girt yst á Ránar slóðum, fyrir löngu lítils virt, langt frá öðrum þjóðum. Um þess kjör og aldarfar…

Eitt lag enn

Með þér - verð ég, eins og vera ber, alveg trylltur, kemst í takt við þig, þú tælir mig. Ég fer eftir…

Eitthvað gamalt og gott

Við félagarnir förum oft á sveitaböll, náum þar í dúfur og fáum drátt. Þetta eru oftast mikil fylliskröll, við syngjum alltaf með…

Ekkert svar

Langar nætur, ljósa kalda daga hef ég leitað, það er mannsins saga. Fundið aðeins óma gleymdra laga en ekkert svar, ekkert svar.…

Ekki nema von

Það er hugarstríð, ást og hatur alla tíð hér í heimi, ár og síð. Þegar myrkrið fer eins og alda yfir sker…

Eldgamla Ísafold

Eldgamla Ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð. Mögum þín muntu kær, meðan lönd girðir sær og gumar girnast mær, gljáir sól á hlíð.…

Ellin

Við ellina er illt að kljást og eins við heiminn og til hvers var að vera glíminn hann vinnur svona á öllum,…

Elsku vinurinn góði

Nú er úti norðanvindur, nú er hvítur Esjutindur. Ef ég ætti úti kindur myndi ég láta þær allar inn, elsku besti vinurinn.…

Elskulega mamma mín

Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðin er…
1 9 10 11 12 13 46