Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ekkert svar
Langar nætur, ljósa kalda daga
hef ég leitað, það er mannsins saga.
Fundið aðeins óma gleymdra laga
en ekkert svar, ekkert svar.
Ég hef efast, þegar einn ég reika,
er þá lífið aðeins hismið veika?
Hlusta á vindinn í visnu sefi leika,
en ekkert svar, ekkert svar.
Ég vænti svara, vildi þekkja leiðir.
Vita skil á því sem ferðir greiðir.
Þrá lífið en ekki orð sem deyðir.
en ekkert svar, ekkert svar.
Duri duri......
Langar nætur, ljósa kalda daga
hef ég leitað, það er mannsins saga.
Fundið aðeins óma gleymdra laga
en ekkert svar, ekkert svar.
Jónas Friðrik
