Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ekki nema von

Það er hugarstríð,
ást og hatur alla tíð
hér í heimi, ár og síð.
Þegar myrkrið fer
eins og alda yfir sker
þegar eitthvað út af ber.

Kannske er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Ekki nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf
á morgun.
Vonin ykkur veitir ekki allt.

Það sem bjargar þér
heldur vöku fyrir mér,
hversu lítil sem hún er.
Gefur þjáðum grið,
leggur bjartsýninni lið
þegar mikið liggur við.

Kannske er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Ekki nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf
á morgun.
Vonin ykkur veitir ekki allt.
ohhhhhh.....................
Ykkur mun víst ekki veita af

Kannske er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Er það nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf

Kannske er það von
Á siglingunni veitir ekki af
hér að eiga von
hver veit nema færist þið á kaf
á morgun.
Vonin ykkur veitir ekki allt.
Húúú............

Vonandi þið lifið þetta af...........

Friðrik Sturluson