Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Fagra veröld
Svo mánablíð og björt sem mjöll,
ó, björt sem mjöll skein ásýnd þín.
Og hingað komstu kvöldin öll
og kvöldin öll var drukkið vín.
Og stundin leið við ljóð og ást,
við ljóð og ást. Ó, glaða stund
og ljósu armar, liljumund.
Ó, ljúfa stund, uns gæfan brást.
En hví skal trega horfinn dag
sem heiður, bjartur framhjá rann?
Og hví skal syrgja ljúflingslag
sem lífsglaðast í hjörtum brann?
Um ást og vín bað æskan þín
og alls þess naut sá þúsundfalt
sem lifað hefur líf sitt allt
einn ljúfan dag, við ást og vín.
Ei þekkti ég ást sem aldrei dó.
En ást sem gerði lífið bjart
um stundarbið, ég þekkti þó.
Og þegar næturhúmið svart
um sálu mína síðast fer,
og slekkur augna minna glóð,
þá veit ég hvaða ljúflingsljóð
mun líða hinst að eyrum mér:
Ó, fagra veröld, vín og sól, ég þakka þér!
Tómas Guðmundsson
