Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Fylgd
Komdu litli ljúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni’ um sinn,
- heiður er himininn.
Blærinn faðmar bæinn,
býður út í daginn.
Komdu, Kalli minn.
Göngum upp með ánni,
inn hjá mosaflánni,
fram með gljúfragjánni,
gegnum móans lyng,
- heyrirðu hvað ég syng,-
líkt og lambamóðir
leiti’ á fornar slóðir
innst í hlíðahring.
Héðan sérðu hafið,
hvítum ljóma vafið,
það á geymt og grafið
gull og perluskel,
ef þú veiðir vel.
En frammi á fjöllum háum,
fjarri sævi bláum,
sefur gamalt sel.
Glitrar grund og vangur,
glóir sund og drangur.
Litli ferðalangur
láttu vakna nú
þína tryggð og trú.
- Lind í lautu streymir,
lyng á heiði dreymir,
þetta land átt þú.
Hér bjó afi’ og amma
eins og pabbi’ og mamma.
eina ævi skamma
eignast hver um sig,
- stundum þröngan stig.
En þú átt að muna
alla tilveruna
að þetta land á þig.
Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svika sættir,
svo sem löngum ber
við í heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
Þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.
Göngum langar leiðir,
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gamla landið mitt,
sýnir hjarta sitt.
Mundu, mömmu ljúfur,
mundu, pabba stúfur,
að þetta er landið þitt
Guðmundur Böðvarsson
