Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gangbrautarsöngur

Viðlag:
Já, bílarnir þeir æða hér um borgina hratt,
þeir bensínstybbuframleiðendur, víst er það satt.
Því kunna verðum heldur meir en kálfar og naut
er komin erum við að gangbraut.

Því voðaleg í borginni umferðin er,
það ætíð skaltu muna og gæta að þér,
og áður en þú gengur yfir götu af stað
þá gáðu vel til hægri’ og vinstri, mundu nú það.

Við götur hérna víða eru gangbrautarljós,
já, göturnar í Reykjavík, en ekki’ uppi’ í Kjós,
og krakkar allir verða að kunna þau á
svo komist yfir gangbrautirnar - hlustaðu á.

Ef ýtir þú á takkann og æðir af stað
þú ert að gera vitleysu og hættir á það
að verða fyrir bílum sem ekið er um
og ekki’ er hægt að stöðva svona hreint á punktinum.

Nei, fyrst skal ýta’ á takkann og fylgjast með því
er fagurgræni karlinn birtist luktinni í,
til beggja handa líta og ef brautin er greið
og bílar allir stansaðir við höldum okkar leið.

Margrét Ólafsdóttir