Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gleðibankinn
Tíminn líður hratt á gervihnatta öld,
hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld.
Ertu stundum hugsandi' yfir öllum gulu miðunum,
þú tekur kannski' of mikið út úr Gleðibankanum
Hertu upp huga þinn, hnýttu allt í hnút,
leggur ekkert inn, tekur bara út.
Syndir þínar sem þú aldrei drýgðir sitja í þankanum
óútleystur tékki í Gleðibankanum.
Þú skalt syngja lítið lag
um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér
og láttu heyra að þú eigir lítið gleðihús.
Kósí, lítið lag, sem gæti gripið mig og hvern sem er.
Þú leggur ekki inn í Gleðibankann tóman blús
Magnús Eiríksson
