Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hann er minn ástríki faðir
Margan dag er í myrkrinu gekk ég
og af mætti veikum þræddi tæpan stig.
Þegar allt virtist ókleift og lokað
streymdi ástúð hans og friður um mig.
Hann er það ljós sem mér lýsir
og ljúfasti bróðir og hlíf.
Hann er minn ástríki faðir,
ósk mín og von og líf.
Loks þegar lúinn ég sofna
og lokið við dagsverkið er,
ég bið þess að lausnari lífsins
leiði mig héðan með sér.
Hann er það ljós sem mér lýsir
og ljúfasti bróðir og hlíf.
Hann er minn ástríki faðir,
ósk mín og von og líf.
