Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Harpan ómar

Bárust mér blíðir ómar
bjarta sumarnótt,
stillt var á hörpustrengi,
um stund, og allt varð hljótt.

Hugði ég huldar dísir
hörpu væru’ að slá,
að syngja um ást og yndi,
ósk sína, von og þrá.

Þá birtist mér bláklædd gyðja,
broshýr og undurfríð,
með æskunnar blik í augum,
svo yndislega blíð.

Og ennþá harpan ómar
eftir þennan fund.
Það voru þýðir hljómar,
það var mín óskastund.

Já, það var mín óskastund.

Jenni Jónsson