Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kærleikurinn

Þótt ég talaði tungum manna og engla,

en hefði ekki kærleika,

yrði ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.

Og þótt ég hefði spádómsgáfu

en hefði ekki kærleika ég væri ekki neitt.

Og þótt ég hefði svo sterka trú

að færi mætti fjöll úr stað

en hefði ekki kærleika ég væri ósköp snauður.

Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum

og framseldi líkama minn

en hefði ekki kærleika þá væri ég engu bættari.

Kæleikur trúir öllu, kærleikur vonar allt,

kærleikur, hann umber allt og fellur aldrei úr gildi.

Úr fyrra Korintubréfi, 13.vers