Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kátur drengur

Kátur er hann Kalli minn,
kominn upp í bílinn sinn.
Eitthvað langt hann ætlar sér
út í heiminn sýnist mér.
Tra la la la ...

Gaman væri far að fá,
fallegt margt og nýtt að sjá,
lönd og borgir, fjöll og foss.
Fáir öðlast þvílíkt hnoss.
Tra la la la...

En að þykjast allt það er,
aðeins slíkt ef líkar mér.
Þá með Kalla færðu far,
fargjaldið er ekki par.
Tra la la la...

Glatt skín sól og gott er hjarn.
Gaman er að vera barn,
eiga von og æskuþrá,
ævintýralöndin sjá.
Tra la la la...

Höf. ókunnur