Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Komdu niður

Þegar ég var lítil var ég voða feimin oft
og væri einhver ókunnugur skaust ég upp á loft.
En ef að ég var úti þegar gest að garði bar
ég geystist upp á hlöðuburst og settist niður þar.

Komdu niður kvað hún amma,
komdu niður sögðu pappi og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður sögðu öll í kór.

Svo stækkaði ég meira og þá varð ég voða kát
veslings pabba og mömmu oft setti hreint í mát.
Ég klifraði og hentist yfir hvað sem fyrir var
ég hoppaði upp á skólaþak og settist niður þar.

Komdu niður.........

En seinna verð ég stærri og það verður gaman þá
og víst er það að margt þið fáið þá til mín að sjá.
Þá ætla ég nú upp í tunglið strax að fá mér far
og finna karlinn skrítna sem að á víst heima þar.

Komdu niður kveður amma.
Komdu niður segja pabbi' og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður syngja öll í kór.

Jón Sigurðsson