Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lagið um það sem er bannað
Lagið um það sem er bannað
Það má ekki pissa bak við hurð
og ekki henda grjóti on’í skurð.
ekki fara’ í bæinn og kaupa popp og tyggjó,
ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó.
Það má ekki vaða út í sjó
og ekki fylla húfuna af snjó,
ekki tína blómin sem eru úti’ í beði,
ekki segja ráddi heldur réði.
Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið,
það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.
Það má ekki skoða lítinn kall
og ekki gefa ketti drullumall,
ekki skjóta pabba með byssunni frá ömmu,
ekki tína orma handa mömmu.
Það má ekki hjóla inni’ í búð
og ekki gefa litla bróður snúð,
ekki fara að hlæja þó einhver sé að detta,
ekki gera hitt og ekki þetta.
Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið,
það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.
Sveinbjörn I.Baldvinsson
