Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Landið vort fagra

Landið vort fagra

Landið vort fagra með litskrúðug fjöllin
leiftrandi fossa og glóð undir ís.
Særinn blár girðir og gnæfir hátt mjöllin,
glitklæðin þín skóp þér hamingjudís.

Móðir vor kæra, um mörg hundruð árin

máttugum fjötrum varst bundin og sár,

bið þín var löng þar til loks gréfu sárin

ljómaði dagur við sjálfstæðisár.

Fáninn vor blái, þú frelsis vors merki,
frægð þína efli hver sonur þinn knár.
Elski þig, verndi þig ættstofn vor, sterki.
Auðnan þér fylgi um aldur og ár.

Ísland, vort land, þig með tónum vér tignum.
Töfri vor söngur þér hamingjudag.
Hvert sinn vér brennheitum bænum þig signum,
blessaða land vort, það Íslands er lag.

Árni Thorsteinsson