Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lóa litla á Brú
Lóa litla á Brú hún var laglegt fljóð,
svo ung og glöð og æskurjóð,
vildi fá sér vænan mann
og vera alltaf svo blíð og góð við hann.
Og eitt sumarkvöld ók Sveinn í hlað
á litlum bíl og Lóu bað
að aka með sér upp í sveit.
Þá varð hún feimin og rjóð og undirleit.
Og síðan saga þeirra varð sögu margra lík.
Þau áttu börn og buru og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur og hún hefur sjaldan frí,
því Lóa þarf að fá sér fötin ný.
Lóa litla á Brú hún er lagleg enn
og hýr á brá og heillar menn,
ergir oft sinn eiginmann,
því hún er alltaf svo blíð við aðra en hann.
Jón Sigurðsson
