Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Mæja litla

Á gallabuxum og gúmmískóm
hún gengur árla dags
í fiskiverið svo frísk og kát
og flakar til sólarlags.
Í stöðinni er hún stúlkan sú
er strákana heillar mest
og svo er hún líka við fiskinn fim,
hún flakar allra best.

Hún Mæja litla með ljósa hárið,
litfríð er hún á kinn,
og nú er hún komin á átjánda árið,
og augun þau drottinn minn.
Og þegar hún brosir og blikkar þá
blossa hjörtun að ástarþrá,
og alveg hún dansar og alveg hún hlær
eins og sumar blær.
Hún Mæja litla með ljósa hárið
líkust er álfamær

Ási í Bæ