Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Manstu vinur

Manstu vinur þýðan blása blæ
eina ljósa sumarnótt…

Þá var lífið sólskin sumarnátta
silfurlitur himinn, gullin ský.
Ævintýraþráin þúsund þátta
þínum faðmi bar mig ljúfum í
þá var nóttin svo hljóð og hlý.

Manstu vinur þýðan blása blæ
yfir bláan víðan sæ.
Manstu vinur líða létt og hljótt
eina ljósa sumarnótt .

Fyrir löngu blíður ástarylur
okkur bæði svæfði hægt og rótt .
Æsku minnar ævintýri biðu
ofurlágum rómi milt og hljótt
gegnum vökula vetrarnótt

Manstu vinur…

Valgeir Sigurðsson