Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Mjólkin hennar Huppu

Í fjósinu, í fjósinu
býr fjarska skrýtinn álfur
sem heitir Búi’, og hoppar um,
hjá Huppu og fleiri nautgripum.
Í fjósinu, í fjósinu
býr fjarska skrýtinn álfur.

Einn daginn hann, einn daginn hann
svo dapur kvað við Huppu;
„Enn hverfur mjólkin, hvert hún fer
er hulin leyndardómur mér,“
einn daginn hann, einn daginn hann
svo dapur kvað við Huppu.

Í langa ferð, í langa ferð
hann lagði, á mjólkurbílnum.
En Huppa beið hans básnum á
með band um háls, og tuggði strá
Í langa ferð, í langa ferð
hann lagði, á mjólkurbílnum.

Í mjólkurstöð, í mjólkurstöð
var margt að sjá og heyra.
Þar streymdi mjólk um slöngurnar
og steyptist niður’ í fernurnar.
Í mjólkurstöð, í mjólkurstöð
var margt að sjá og heyra.

Í mjólkinni, í mjólkinni
var mergð af skrítnum gerlum
sem trítluðu þar til og frá,
svo talsvert kátlegt var að sjá.
Í mjólkinni, í mjólkinni
var mergð af skrítnum gerlum.

Í mjólkurbúð, í mjólkurbúð
var margt að sjá og kaupa;
til dæmis osta, skyr og smjör,
það styrkir, eykur líf og fjör.
Í mjólkurbúð, í mjólkurbúð
var margt að sjá og kaupa.

„Ja, Huppa mín, ja, Huppa mín
nú hef ég fréttir góðar.
Við búðardyrnar bíður fólk
með buddu til að kaupa mjólk.
Ja, Huppa mín, ja, Huppa mín
nú hef ég fréttir góðar.“