Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Myndin hennar Lísu
Gult fyrir sól, grænt fyrir líf
Grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð
Hvítt fyrir börn sem biðja um frið
biðja þess eins að mega lifa eins og við
Er ekki jörðin fyrir alla
Taktu þér blað málaðu á það
Mynd þar sem allir eiga öruggan stað
Augu svo blá hjörtu sem slá
hendur sem fegnar halda frelsinu á
Þá verður jörðin fyrir alla.
