Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Nína og Geiri
Ef þú
vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér,
alla mína kossa ást og trú.
enginn fær það nema þú.
Nína
átti heima á næsta bæ.
Ég næstum það ekki skilið fæ,
hún var eftir mér alveg óð.
Ég fékk bréf og í því stóð:
Ef þú
vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér,
alla mína kossa ást og trú,
engin fær það nema þú.
Ég las
það og þaut svo strax af stað.
Mér stóð ekki á sama ég segi það.
En Nína grét og gekk mér frá,
hún gat ei skilið sem ég sagði þá:
Nína
góða gráttu ei.
gleymdu mér, ég segi nei.
Þú ert enn of ung góða mín
og ég get alls ekki beðið þín.
Til
Reykjavíkur lá mín leið.
Langan tíma þar ég beið.
Ég alltaf reyndi en illa gekk
að gleyma bréfinu sem ég fékk.
Ef þú
vilt bíða eftir mér
á ég margt að gefa þér
alla mína kossa ást og trú.
enginn fær það nema þú.
Ég
vissi að aldrei fengi ég frið
fyrr en Nínu ég sættist við.
Hugurinn stöðugt hjá henni er,
hún skal víst fá að giftast mér.
Ég ók
í skyndi upp í sveit,
æskustöðvarnar mínar leit.
En Nína leit mig ekki á,
ég enn ei skil það sem hún sagði þá:
Geiri
elskan gráttu ei,
gleymdu mér ég segi nei.
Þú vildir mig ekki veslings flón,
því varð ég að eiga hann vin þinn Jón.
