Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Nú liggur vel á mér
:/:Nú liggur vel á mér, nú liggur vel á mér.
Gott er að vera léttur í lund,
lofa skal hverja ánægjustund.:/:
Stína var lítil stúlka í sveit,
stækkaði óðum blómleg og heit,
Hún fór að vinna, var margt að gera,
lærði að spinna, látum það vera.
Svo var hún úti sumar og haust,
svona var lífið stritendalaust.
Samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Gaman fannst Stínu’ að glettast við pilt,
gaf hún þeim auga, var oftast stillt.
Svo sá hún Stjána, það vakti þrána,
hann kom á Grána út yfir ána.
Sæl var hún Stína saklaus og hraust,
svo fór hann burtu koldimmt um haust.
Samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú er hún Stína gömul og grá,
getur þó skemmt sér dansleikjum á,
situr hún róleg horfir á hina
hreyfast í takt við dansmúsíkina.
Alltaf er Stína ánægð og hraust,
aldrei finnst henni neitt tilgangslaust.
Enn getur Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Númi Þorbergsson
