Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Nú syngið lýðir lausnarans

(Amazing Grace)

Nú syngið lýðir lausnarans
með ljúfum gleðihreim
og standið vörð um verkin hans
í von um betri heim.

Ef lyftir þínum huga hátt
á himins æðsta svið –
og trú á Guð þinn ætíð átt
þú öðlast sálarfrið.

Því unga sál þess eins ég bið
að eignist styrka trú
og öllu góðu leggir lið
á lífsins vegi, þú.

Margrét Ólafsdóttir