Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gömlu dagana gefðu mér
Gömlu dagana gefðu mér,
þá gat ég verið einn með þér,
nú tæknin geggjuð orðin er
gömlu dagana gefðu mér.
Mig dreymdi að það væri komið árið 2012
þeir tunglið höfðu malbikað
og steypt í hólf og gólf.
Já veröldin var skrýtin
það var allt orðið breytt
því vélar unnu störfin
og enginn gerði neitt.
Og ekki hafði neitt að gera
útvarpsstjóri vor,
því yfirmaður hans var lítill
vasa transistor.
Og þingmennirnir okkar voru
ei með fulle femm,
því forsætisráðherrann
var gamall IBM
Gömlu dagana.....
Ég álpaðist á bíó þar með
ungri stúlkukind,
en ekki hélt ég út að horfa á
röntgen cowboymynd.
Ég dapur fór á barinn
og bað um double bara af stút,
en er dóninn tók upp sprautu
þá flýtti ég mér út.
Mig dreymdi að ég væri giftur
þeirri sömu sem ég er,
ó mér leiðist þetta barnaleysi hér,
ég gerðist nokkuð bráður
og vildi bæta úr því strax
nei býddu sagði hún góði
við notum pillur nú til dags.
Gömlu dagana...
ó, en sá draumur og ég er
ánægður með lífið eins og það er.
Magnús Ingimarsson
