Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Obb bobb bobb

Ég hélt út í haga með hálftóman maga
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við.
Og elginn þar óð ég á öndinni stóð ég
Obb bobb bobb - hvað haldið þið?

Ég heilsaði hestum sem hátignum gestum
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við.
Þeir gáfum mér gætur sem grænmetisætur
Obb bobb bobb - hvað haldið þið?

Með gaulandi garnir og gúmskórnir farnir
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við.
Eitt áheit ég efndi á ættarmót stefndi
Obb bobb bobb - hvað haldið þið?

Þar átti að eta og yrkingar meta
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við.
Því stjórnaði spúsa hans samvinnu Fúsa
Obb bobb bobb - hvað haldið þið?

Fólk sveif létt um salinn þar sveiflaðist halinn
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við
Mig konurnar kysstu úr klaufunum hristu
Obb bobb bobb - hvað haldið þið?

Við margar ég mynntist og mörgum ég kynntist
Obb bobb bobb bobb bobb bíðið nú við.
Í gemsum má gjalla ef glatt er á hjalla
Obb bobb - er ekki við

Magnús Haraldsson