Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Öræfin
Hér ein ég reika' um öræfanna slóðir.
Hve auður þeirra gleður mína sál.
Mig fýsir ekki að finna aðrar þjóðir,
mín freista ekki heimsins glys og prjál.
Í náttúrunni máttarvöldin mætast
og miðla okkur því sem lífið bjó.
Því er það víst að innstu draumar rætast
í öræfanna djúpu kyrrð og ró.
Hér sérðu bæði merki elds og ísa
og yndisfagurt blóm í hvammi grær.
Í fjarlægðinni fjöllin tigin rísa
og freðin jökulkinn við sólu hlær.
Af lágum stalli lækjarbunan seitlar
og lífið gefur ungri burnirót,
í bergið harða merki sitt hún meitlar,
hún megnar bæði' að sverfa klöpp og grjót.
Já, lækjarbunan litla mér það kenndi
að lúta því sem viðkvæmt er og smátt,
að gjafir þær er sjálfur Guð oss sendi
í sameind lífsins allar taka þátt.
En hvað sem ævin kann að bera´í skauti
mig kalla til sín hraun og fossagnýr,
því betra ekkert fæ að förunauti
en friðinn sem í öræfunum býr.
Margrét Ólafsdóttir
