Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Snjókarlinn
Húsið okkar verður lágreist og hvítt.
Húsið okkar verður rúmgott og hlýtt.
Húsið okkar verður hreinlegt og bjart
og hér við getum skrafað margt.
Ef þú kemur út, er allt hvítt af snjó.
Hér í stærðar hús, höfum efni nóg.
Eitthvert annað kvöld, efllaust gætum við
búið snjókarl til, hérna út við hlið.
Snjókarlinn er sætur svört augu með.
Snjókarlinn um nætur margt getur séð.
Sjnókarlinn hann grætur ef sólin skín
og þá hann missir augun sín.
