Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Söngur Signýjar

Söngur Signýjar

Ég lauk stúdentsprófi létt,
lét mig varða jafnan rétt,
í Háskólanum las ég lög
við lógíkina hvergi rög,
en svo er ég giftist Gumma,
þá gall við þessi lumma:
Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg Signý.

Ég fór að vinna við mitt fag,
virtist allt mér ganga í hag,
við lifðum á mínum launum.
Um lambasteik með baunum
var Gummi sífellt að suða
og svona varð ég að puða
því
Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg Signý.

Ég hlaut mannaforráð fljótt,
varð á fundum eftirsótt,
og lífið við mig lék,
lánið aldrei frá mér vék.
En þá um bæinn flaug sú frétt
að frúin væri kasólétt.
Í eðli þínu ertu bara regluleg kvenleg Signý.

Þá upphófst stöðugt strit,
stökk og hlaup á allra vit,
þrefalt verk ég þurfti að rækja,
þjóna manni, börnum, vinnu sækja.
Þegar ég er að þvo og skeina,
þá heyrast allir veina:
Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg Signý.

Í huga mínum hljómar æskulag
um hugsjónir, frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Við vondan draum ég vakna á ný,
ég veruleikann aldrei flý.
Og þegar ég keppist við kvöldin löng
þá kannast ég við þennan söng:
Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg Signý.

Þann morgun er ég vakna við mitt óp
í vonleysi ég geng í þeirra hóp
er feta verða fornar slóðir
sem frilla, vinnukona, móðir.
Þann dag er ég kæfi metnað minn,
ég mjálma sjálf undir talkórinn:
Í eðli þínu varstu alltaf reglulega kvenleg Signý.

Þrándur Thoroddsen