Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Spáðu í mig
Kvöldin eru kaldlynd úti’ á nesi
kafaldsbylur hylur hæð og lægð
kalinn með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð:
spáðu í mig
þá mun ég spá í þig
spáðu í mig þá mun ég spá í þig
nóttin hefur augu eins og flugan
og eflaust sér hún mig þar sem ég fer
heimskulega á þinn funda að fela
flöskuna og mig í hendur þér
spáðu í mig……
finnst þér ekki esjan vera sjúkleg?
Og akrafjallið geðbilað að sjá
en ef ég bið þig um að flýja með mér
til omdúrman þá máttu ekki hvá
spáðu í mig……
