Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Sumarnótt (MÓ)

Enn er nóttin yfir bænum,

andar golan hlýtt frá sænum.

Sólin gulli slær á voga,

sýnist allt af geislum loga.

Mýsnar sér úr holum hraða,

hefja fuglar sönginn glaða.

Merkurdýrin morgunn lofa

en mennirnir sofa.

Nú er lokið öllum erli,

enginn maður hér á ferli.

Víst þó mundi hræra hjarta

himnesk sumarnóttin bjarta.

Morgunsólin glóey gyllir,

gróðurangan loftið fyllir.

Munablómin morgunn lofa

en mennirnir sofa.

Margrét Ólafsdóttir