Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Tvær úr Tungunum
Tvær úr Tungunum
Við erum tvær úr Tungunum
Og til í hvað sem er.
Hundleiðar á hænsnunum
og harðlífinu hér.
Eftir fjórtán ár í forinni,
okkur finnst við verðskulda,
að stinga af úr sveitinni
og sjá höfuðborgina.
Við erum;
Útvaxnar á ýmsum stöðum
rauðbirknar og frekknóttar,
klofnar upp að herðablöðum,
kafloðnar og kiðfættar,
nærsýnar og naflaslitnar,
nefbrotnar, í keng,
vergjarnar og veðurbitnar,
valkyrjur í spreng.
Við æddum inn í öngþveitið
og ultum til og frá,
ruddumst inn á dansgólfið
og djöfluðumst því á.
Gunna systir glennti sig,
í geysihröðum ræl,
rann svo beint á rassgatið
og snéri sig á hæl.
Við erum…….
Halli og Laddi
