Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þú ert mín draumadís
Þú ert mín draumadís
Þú ert
mín draumadís
er dagur í austri rís.
Ég held til þín heim á leið,
en hratt rennur tímans skeið.
Ég kem þegar kvölda fer
og kátur að dyrum ber,
ég mæti þér, dís minna drauma,
hve dásamlegt húmið er.
Lengi
ég þráði þig,
að þú gætir elskað mig.
Ég hélt út í heim frá þér
og hugði þig týnda mér.
Nú flýti ég för til þín
og fagnandi kvöldsólin skín.
Því bréfið þitt lífinu breytti,
þú bíður mín ástin mín.
Pétur Aðalsteinsson
