Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þú fullkomnar mig

Það rofar til inni’ í mér

og lífið tekur lit.

Veit nú hvað gefur mér mest

og tilverunni glit.

Aldrei var sólin svo skær

né fugla fegurri hljóð.

Mér finnst ég skilja í dag

öll heimsins ástarljóð.

Þú fullkomnar mig,

ég finn að ég er annar en ég var.

Þú ert við spurnum mínum lokasvar,

þú lyftir mér upp, lýsir mér leið.

Ég vegsama þig

og vonir mínar bind ég aðeins þér.

Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér

í huga og hér, ævinnar skeið.

Liðið er grafið og gleymt

og raunir frá í gær.

Loksins ég veit upp á hár

hvað hjartað í mér slær.

Og þó að ég ferðist um lönd

þú ert mín heimahöfn.

Norðljósin skrifa í kvöld

í hvolfið okkar nöfn.

Þú fullkomnar mig,

ég finn að ég er annar en ég var.

Þú ert við spurnum mínum lokasvar,

þú lyftir mér upp, lýsir mér leið.

Ég vegsama þig

og vonir mínar bind ég aðeins þér.

Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér

í huga og hér, ævinnar skeið.

Aldrei var sólin svo skær

né fugla fegurri hljóð.

Mér finnst ég skilja í dag

öll heimsins ástarljóð.

Stefán Hilmarsson