Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ver hjá mér herra
Ver hjá mér Herra, dagur óðum dvín,
ó, Drottinn ég hef lengi saknað þín.
Í æskuglaumum gleymdi sálin þér,
í gleðidraumnum uggði’ ég lítt að mér.
En þegar loksins lækka tók mín sól
ég leita fór og spyrja: “Hvar er skjól?”
En veröld gegndi: “Veika, dauðans hey!
Þín von er fánýt – Guð þú finnur ei”.
Senn slokkna öll mín litlu gleðiljós
og líf mitt fjarar senn við dauðans ós
og húmið stóra hylur mína brá.
Ó, herra Jesú vertu mér hjá.
