Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Verst af öllu
Verst af öllu
Verst
af öllu er í heimi
einn að búa í Reykjavík,
kúldrast uppi á kvistherbergi
í kulda og hugsa um pólitík,
vanta félagsskap og finnast
fólkið líta niður á þig,
elda sjálfur, vita' að veslings
vömbin er að gefa sig.
Troðfullt allt af tómum flöskum.
táfýlan að drepa þig.
Laumast
heim eitt kvöld með konu,
kanna hennar innstu rök.
Æfa fyrir neðan nafla
náttúrunar glímutök.
Losa það sem þarf að losa,
þukla eins og venjan er.
Leikinn við að ljúga og brosa,
látast elska, verða ber.
Sýna allar æfingarnar,
eina kvöldstund gleyma sér.
Vita
að þegar vaknar aftur
verður allt jafn tómt sem fyrr.
Konan
sér í fötin flýtir,
fer í burtu. Lokast dyr.
Þú ert einn í þínu rusli,
þessi stund er óðar gleymd.
Sólin inn um gluggann gægist,
glottir yfir þinni eymd.
Þessi nótt úr þínum huga
þurrkuð út og mun ei geymd.
Þannig
einn af öðrum líður
ógnarlangur dagur hjá.
Glingrað
oft við öl um nætur,
einsemd þannig gleyma má.
Þyrfti víst að þvo og hreinsa,
þyrfti margt að gera við,
ekkert þér úr verki verður,
vesöldin á hvora hlið.
Ef þú gætir burt þú færir.
Ferlegt mjög er ástandið.
Verst
af öllu er í heimi
einn að búa í Reykjavík,
kúldrast uppi á kvistherbergi
í kulda og hugsa um pólitík.
vanta félagsskap og finnast
fólkið líta niður á þig,
elda sjálfur, vita að veslings
vömbin er að gefa sig.
Troðfullt allt af tómum flöskum.
Táfýlan að drepa þig.
Jónas Friðrik
