Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Við göngum mót hækkandi sól
Við göngum mót hækkandi sól
Við
göngum mót hækkandi sól, sól, sól
og sjáum hana þíða allt er kól, kól, kól,
svo vætlurnar streyma og vetrinum gleyma
því vorið er komið með sól, sól, sól.
Ó, heill
sé þér bráðláta vor, vor, vor.
Velkomið að greikka okkar spor, spor, spor,
því ærsl þín og læti og ólgandi kæti
er æskunnar paradís, vor, vor, vor.
Og
hjörtu' okkar tíðara slá, slá, slá.
Við slöngvum deyfð og leti okkur frá, frá, frá
og leggjum til, iðin, í leysingjakliðinn
það litla sem hvert okkar má, má, má.
Aðalsteinn Sigmundsson
