Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stríð og friður

Frið, eftir langa bið
öll viljum við. Semjum frið.
Stríð hafa alla tíð ært heimsins lýð.
Ég vona að brátt alls staðar verði sátt.

En þótt vígbúist her, friðsæl veröldin er
víðast hvar, en hér og þar eitthvað út af ber.

Aldir, ár geisar stríð,
heimtar fórnir af saklausum lýð.
Sorgir, fár, blóð og tár,
vígi falla og seint gróa sár.

Við, bæði ég og þú
veljum frið, von og trú
Vörn þurfa saklaus börn
sem stríðið flátt leikur grátt.
Hvert átak stórt byrjar smátt.

En þótt vígbúist her, friðsæl veröldin er
víðast hvar, hér og þar eitthvað út af ber.

Aldir, ár geisar stríð,
heimtar fórnir af saklausum lýð.
Sorgir, fár, blóð og tár,
vígi falla og seint gróa sár.