Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Viltu vekja minn söng

Af veikum mætti ég um strengi strýk,

en sterk er óskin mín og vonin rík,

að þú komir til mín, að ég finni þig,

að ást þín vilji snerta mig.

Viltu vekja sönginn minn,

vefja mig í faðminn þinn,

því mín nótt er löng og þetta lag er bænin mín.

Viltu snerta andlit mitt ef ég hvísla nafnið þitt?

Verður þú hjá mér ef ég er særð og þarfnast þín?

Ég leita orða þeirra er allt fær tjáð,

sem óska ég um kærleik, frið og náð,

að þú komir til mín, að ég finni þig,

ástin vilji snerta mig.

Viltu vekja sönginn minn,

vefja mig í faðminn þinn,

því mín nótt er löng og þetta lag er bænin mín.

Viltu snerta andlit mitt ef ég hvísla nafnið þitt?

Verður þú hjá mér ef ég er særð og þarfnast þín?