Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Vorkvöld við Hrútafjörð
Vorkvöld við Hrútafjörð
Vaknar
jörð af værum blundi.
Vorsins töfrar heiminn fylla.
Logar bál á lygnu sundi
ljóssins öldur skýin gylla.
Kyssir
fjöllin, kostaríku,
kvöldsól yst við hafsbún hljóða.
Fagnar andinn frelsi slíku,
fyllist trú á landið góða.
Yndisfagur,
svali, særinn
sáttur hlær við fjörusandi.
Djásnir hafsins, blíði blærinn
ber í næði upp að landi.
Unaðsdrauma
æsku minnar
eygi ég á þessum slóðum.
Kvöldsins tónar kyrrðarinnar
kveða þá í hálfum hljóðum.
Ása Stefánsdóttir
