Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

Fundust: 36 textar

Ég á augu ég á eyru

Ég á augu, ég á eyru, ég á lítið skrýtið nef. Ég á augnabrúnir, augnalok sem lokast þegar ég sef. Ég á…

Ég á gamla frænku

Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg. Við eftir henni hermum er hún gengur niður á torg. Og svo sveiflast fjöðu’rin og…

Ég á lítinn kátan kött

Ég á lítinn kátan kött, kátan kött, kátan kött. Hann er grár með hvítan hött, grár með hvítan hött. Mjaaaaaá, mjaaaaaaá, Svona…

Ég á lítinn skrýtinn skugga

Ég á lítinn skrýtinn skugga, skömmin er svo líkur mér, hleypur með mér úti’ og inni, alla króka sem ég fer. Allan…

Ég bið að heilsa

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. Á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi Ísa, að fósturjarðar minnar…

Ég eignaðist fádæma úrillan mann

Ég eignaðist fádæma úrillan mann og ætti því sjálfsagt að skilja við hann. Viðlag: En ég elska’ hann Jóhann, árans kjóann, jafnvel…

Ég er á leiðinni

Á morgun er kominn nýr dagur og sporin sem ég steig í nótt firnast fljótt, á þessum stað gleymir þú mér eða…

Ég er aumingi

Ég er mikið mæðugrey, má því sáran gráta, af því forðum ungri mey unni ég fram úr máta. Aldrei sé ég aftur…

Ég er farmaður

Ég er farmaður fæddur á landi ekki forlögin hafa því breytt. Þar sem brimaldan sogast að sandi hef ég sælustu stundum eytt.…

Ég er fæddur ferðamaður

Lag: Volga, Volga
Ég er fæddur ferðamaður, frjáls sem örn, er hæstur fer. Alltaf hress og ætíð glaður aðrir þó að barmi sér. Þegar langa…

Ég er mús

Lag: Þegar barnið í föt sín fer
Ég er mús eins og allir sjá, lík er pabba og mömmu sem ég á . Ostur besta sem ég veit enda…

Ég gef þér hjarta mitt

Ég gef þér hjarta mitt, ó Guð, ég gef þér allt sem í mér er, sérhverja hugsun, hverja þrá gef ég þér.…

Ég get klappað

Ég get klappað, ég get gengið hratt. Ég get séð og hlustað, það er satt. Lykt af öllu finn ég og fæ…

Ég heiti eftir afa mínum

Ég heiti eftir afa mínum er því nefndur Jón. Ennþá er ég agnarsmár og ofurlítið flón. Ég oftast er í gallabuxum, blautur…

Ég heiti Óli rauði

Ég heiti Óli rauði og allir þekkja mig því allir jólasveinar nota rautt í föt á sig. Rauð eru eplin góðu og…

Ég held ég gangi heim

Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim. Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim. Þetta er búið að…

Ég heyri svo vel

Ég heyri svo vel, ég heyri grasið gróa, ég heyri svo vel, ég heyri snjóinn snjóa, ég heyri svo vel, ég heyri…

Ég kem til þín Jesús

Ég kem til þín Jesús á friðarins fund sem færir mér trúna á þig, því alltaf hún gleður og styrkir sú stund…

Ég langömmu á

Ég langömmu á sem að létt er í lund, hún leikur á gítar hverja einustu stund. Í sorg og í gleði hún…