Tvær limrur
31. mars, 2026Skrifað í gestabók í Landmannalaugum
31. mars, 2026Brennisteinsalda
Léttskýjahnoðrarnir líða um geim
og lífga upp himininn bláa.
Bleikrauða faðminn sinn breiðir mót þeim
Brennisteinsaldan mín háa.
Hún stendur sem gyðja við stórbrotið hraun
með steingráum rönum sig prýðir,
og Bláhnúkinn reistan hún lítur á laun
sem Laugarnar dýrðlegu skrýðir.
