Skólalög

Stærstur hluti laga Margrétar var saminn fyrir kennslu og tónlistarflutning í Fossvogsskóla; til flutnings á skólaskemmtunum og í leikritum nemenda, í tengslum við þemadaga í skólanum, fyrir blokkflautunám nemendanna, fyrir barnakórinn sem hún stjórnaði um árabil, eða einfaldlega skemmtileg krakkalög sem er upplagt að syngja í tónmenntatímum.